أهلاً وسهلاً

الأربعاء، مايو 10، 2006

"Feeling hot hot hot....."

úff.... hvað maður getur orðið dasaður í þessum hita. Er samt alls ekki að kvarta yfir góða veðrinu sem búið er að vera síðustu vikuna því þetta er alveg yndislegt! Líka gott að koma sér í "sólþol" fyrir Beirút.
Okkur vantar reyndar einhvern stað til að búa á í Beirút þannig að ef einhver þekkir einhvern sem býr á góðum stað í Beirút og vill framleigja í 4 mánuði þá call me! Rajaa, palestínsk stelpa sem er með mér í bekk og er líka að fara til Beirút, var að bjóða mér og Mette að búa í flóttamannabúðum sem frændi hennar sér um en ég verð að segja að mér líst alls ekki vel á það og þegar við fórum að spyrjast fyrir um þetta þá var fólk þvílíkt hissa á því að hún skyldi stinga upp á þessu við 2 ljóshærðar stelpur frá Danmörku og Íslandi, þetta væri sko alls ekki öruggt svæði fyrir okkur, ekki alveg nógu vel úthugsað hjá henni en ég held hún hafi nú bara meint vel.
Fyrir utan góða veðrið þá er allt gott að frétta. Keppti 3 leiki í síðustu viku. 1 með 7 manna liðinu þar sem þær náðu ekki í lið (erum sko með 11 manna lið og 7 manna lið) og ég spilaði í marki seinni hálfleik sem var mjög gaman að prófa.
Svo á laugardaginn þá brunuðum við í 11 manna liðinu til Fredericia og kepptum í 20 stiga hita. Töpuðum reyndar 3-1 en þar sem við vorum bara akkúrat 11 + vinkona einnar sem kom til að hjálpa okkur og þær eru efstar í seríunni þá er þetta alveg ágætis árangur.
Á föstudaginn var risapartý í háskólagarðinum. Þar komu saman nokkur þúsund manns og grilluðu, drukku öl og horfðu á skemmtiatriði og að sjálfsögðu í geggjuðu veðri. Það var þvílík stemning og sérstaklega í bænum á eftir.
Ég kíkti svo aðeins á djammið á laugardagskvöldið sem var mjög gaman, ætlaði reyndar að hitta Gunnar Sigvalda og félaga sem voru í menningarferð en hann sveik mig!! Skamm Gunnar, ég skal muna þetta ;)
Þessi vika er svo síðasta skólavikan og á morgun er seinasti dagurinn þannig að það verður gert eitthvað skemmtilegt á morgun í tilefni dagsins fengið sér köku og kannski 1 eða 2 öl.
Það er enginn leikur þessa helgi þannig að það er strax búið að plana tvö partý eitt annað kvöld eftir æfingu og annað á laugardaginn og svo er Stiften Rocker á föstudaginn frá 11-23, útitónleikar og skemmtiatriði og að sjálfsögðu er ég búin að tryggja mér miða á það.
Strembin dagskrá framundan.

Vil bæta smá við: Ég var að eignast frænku þann 3. maí sl. Til hamingju Árný og Ragnar Rafn með prinsessuna, þúsund kossar og knús :*
Og svo á Sara Lind krúsídúlla 1 árs afmæli í dag, til hamingju með daginn rúsína :*

Farin út að sleikja sólina, ma´sallama