أهلاً وسهلاً

الاثنين، أبريل 24، 2006

Home at last!

Ó mæ god! Arrested Development eru svo ógeðslega fyndir þættir. Bjössi bolla var að láta mig hafa 3 seríur og ég horfði á nokkra þætti í gær á leiðinni til Århus með lestinni. Langaði svo oft að springa úr hlátri en þurfti að halda í mér því það hefði verið svoldið vandræðalegt.
Ég er sem sagt komin tilbaka til Århus. Ekki svo slæmt því veðrið í dag var alveg geggjað. Ég þurfti að fara niðrí skóla í dag því það var síðasti skilafrestur fyrir valfag í dag og ég gerði þetta að sjálfsögðu "the Icelandic style" og skilaði 10 mín. áður en skrifstofan lokaði annars er ég ekkert í skólanum þessa viku því Omar kennarinn minn skellti sér til Írak en samt NÓG að gera í lærdómnum.
Hitti síðan Erlu sem er að gera með mér verkefni í Moderne Mellemøsten og við sátum úti fyrir framan mötuneytið örugglega í 3 tíma að sleikja sólina og að "tala" um verkefnið en náðum eiginlega að tala um allt annað held ég.
Ég var í Køben um helgina hjá Regínu og Bjössa það var voða fínt. Kíktum á djammið á laugardaginn með Valdísi, Loga og Helga. Það var geðveikt gaman og þá sérstaklega að vera vitni af danseinvíginu milli Helga og einhvers gaurs vildi óska að ég hefði verið með myndavél til að geta tekið það upp. Gisti hjá Valdísi og Loga um nóttina því ég nennti ekki að fara ein til Regínu og Bjössa þúsund þakkir fyrir gistinguna :* Brunaði síðan hingað með lestinni í gær og var komin í rúmið mitt langþráða um 12 leytið í gær er búin að sofa í 6 mismunandi rúmum á 1 viku þannig að það var MJÖG gott að komast í sitt eigið!
Halla var að setja inn myndir frá Forårsfest JAI endilega kíkið hér

Bið að heilsa í bili, kv. Ragna