Ohhh... skrifadi tetta blogg á føstudaginn og henti tví inn en sá svo núna ad tad kom aldrei inn en hérna er tad samt....
Já það er alveg rétt hjá Dröfn frænku ég hefði ekki átt að vera að monta mig af nýju tölvunni minni og nota hana svo ekkert en það er ekki málið að ég noti hana ekki heldur erum við ekki komnar með netið í nýju íbúðina því við getum ekki sótt um netið fyrr en við erum búnar að sækja um sjónvarpið og núna erum við búnar að því þannig að á næstu 3 mánuðum ættum við vonandi á fá netið (já ég sagði á næstu 3 mánuðum! Danir eru sko ekkert að stressa sig yfir þessu) þannig að þangað til verð ég bara að vera dugleg að skrifa heima og nota netið í skólanum. Ég er líka bara svo stillt í tímum ég þori aldrei að vera á netinu heldur þykist frekar fylgjast með því við erum svo fá að það er svo augljóst þegar einhver er ekki að fylgjast með :/
Annars er nú bara búið að vera rólegt hjá okkur systrum síðustu 2 helgar. Við erum búnar að spila báðar helgar og áttum að spila um helgina líka en það er búið að fresta leiknum því völlurinn er þakinn snjó og það er sko ekki skemmtilegt að spila við svoleiðis aðstæður þó að við séum búnar að gera það síðustu 2 helgar (vita Danir ekki að það er hægt að byggja innanhússhallir með gervigrasi!!!). Það er samt fínt að fá að spila aftur ég hef ekki spilað alvöru leik í næstum 3 ár og er búin að byrja inná í báðum leikjum þannig að þetta er fín æfing fyrir sumarið :)
Svo er það að frétta af Beirút málunum að við erum ennþá að reyna að finna eitthverja góða kúrsa sem henta okkar “studieordning”. Það er annað hvort The American University of Beirut sem hjómar rosalega vel og er að nota sömu kennslubækur og við en kostar um 70 þús. önnin og er bara 5 credits sem við fáum fyrir arabískuna þannig að það er svolítill ókostur en svo þekkir frændi hennar Souzane eitthvað fólk í einvherju “Language center” sem hljómar líka mjög vel. Ég mailaði á þau í fyrradag og þau svöruðu tilbaka að þau gætu búið til sérstakt prógram bara fyrir mig sem fer eftir minni getu og það yrði bara einkakennsla sem hljómar líka rosalega vel en ég veit bara ekki hvort það kosti eitthvað, ekki neitt in shja allah!
Og þar sem það er enginn leikur um helgina og vinkona Báru og Soffíu er að koma í heimsókn þá verður smá stelpudjamm um helgina, ætlum að elda saman og hafa það huggó.

0 Comments:
إرسال تعليق
<< Home