أهلاً وسهلاً

الأربعاء، مارس 29، 2006

Fimmtudagur 23/3 2006
kl. 22:10
Staðsetning: Kollegie í Hasle, Århus

*ring ring*
- Hæ
-Hæ, hvað eruði að gera?
-Uhhh... ekkkert bara í tölvunni
-Viljiði koma á fimmtudagsdjamm?
-Ójá!! Erum á leiðinni.
Klukkutíma seinna komnar á Social Club að þamba frían öl í salsakennslu og góðum fíling.
Þannig byrjaði helgin hjá okkur systrum þökk sé skvísunum Soffíu Tinnu og Árný.

Helgin var svo æfingarbúðirnar, þvílíkt púl en mjög skemmtileg og náði hópurinn heldur betur að þjappast saman.
Við sýndum dönsku stelpunum framlag okkar Íslendinga í Júróvisjón og leist þeim bara vel á sumar voru meira að segja strax farnar að fá lagið á heilann en þeim fannst samt Silvía Nótt heldur sjálfsörugg ;)
Skólinn gengur bara sinn vanagang og næstu helgi er Forårsfest hjá fótboltanum. Það eru tvær stórar "fester" hjá félaginu á ári ein er um haustið og hin um vorið. Strákarnir sáu um Efterårsfesten þannig að við stelpurnar þurfum að sjá um þessa. Ég og Halla tókum að okkur að sjá um tónlistina. Við erum þegar komnar með 80 góð djammlög en ef þið hafið einhverjar hugmyndir þá endilega commentið!! Við erum að spila leik á laugardaginn og svo er festen um kvöldið þannig að ef maður skorar ekki í leiknum þá er alltaf séns á að skora um kvöldið ;)

Halla var að setja inn myndir frá febrúar og mars þannig að kíkjið á hér ef þið hafið áhuga.