Jú jú, það er satt, stelpan er komin með tölvu þökk sé Landsbankanum og Dell
Var að tengja mig þráðlausa netinu hérna í skólanum þannig að nú verður sko ekkert fylgst með í tímum heldur alltaf hangið á netinu múhahaha......
Annars er það að frétta að við erum fluttar. Fluttum úr 105 m2 íbúð í 25 m2 herbergi og deilum baði og eldhúsi með annarri stelpu. Ég og Halla erum búnar að þurfa að deila herbergi núna í næstum 2 vikur en í næstu viku þá flytjum við í 2. herb. kollegie íbúð og þá getur lífið haldið áfram sinn vanagang. Það þurfti svo sannarlega mikla skipulagshæfileika til að koma öllu dótinu fyrir í þessu litla herbergi en það tókst þó svo að við séum báðar með "queen size" rúm, eiginlega er herbergið bara 1 stórt rúm, þar er borðað, þar er horft á sjónvarpið, þar er lært og þar er sofið o. s. frv. Bara voða kósý.
Við skruppum til Köben seinustu helgi. Mamma kom í smá helgarheimsókn og tími til komin að fara að heimsækja Regínu og Bjössa í höfuðborgina. Þetta var nú samt bara voða róleg helgi, mikið drukkið kaffi og borðað og að sjálfsögðu kom mamma með ísl. lambalæri og fullt af nammi og svo horfðum við á Júróvisjón gegnum netið, áfram Silvía Nótt!!!

Svo klukkaði Halla mig fyrir löngu síðan þannig að ég verð víst að fylla það út:
4 störf sem ég hef unnið um ævina:
- Við Voginn, þar sem minn starfsferill byrjaði af einhverju viti
- Hótel Framtíð, alls kyns störf þar
- Argentína steikhús, Café Borg
- Landsbankinn
4 kvikmyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
- Dirty Dancing, á nebblega svo vel við mig ;)
- Pretty Woman
- Dumb and Dumber
- The Boondock Saints
4 staðir sem ég hef búið á:
- Djúpivogur, það sem ég mun alltaf kalla "heima"
- Kópavogur
- Þorlákshöfn
- Århus
4 sjónvarpsþættir sem mér líkar (erfið þessi því það þarf yfirleitt bara að vera sjónvarp og þá er ég sátt!)
- SEX AND THE CITY ekkert getur slegið þessa þætti út
- Desperate Houswives
- Friends
- Fraiser
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríi:
- Margir staðir á Spáni
- Krít
- England
- Fullt af stöðum í Danmörku
4 matarkyns sem ég held uppá:
- Kjúklingurinn klikkar ekki
- Hakk og spaghetti, Lasagna, einfalt og gott
- Íslenskt lambalæri aaaarrrrgggg........
- Harðfiskur og smjör (annars er ég algjör sælkeri og ekki mikið sem mér ekki líkar)
4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
- Heima á Djúpavogi kannski í sundi eða bara að hanga á sjoppunni í góðum félagsskap :)
- Dubai, Qatar eða Óman, virka eins og draumastaðir
- Einhvers staðar í Frakklandi helst S-Frakklandi, hefur alltaf langað að koma þangað
- Bara einhvers staðar að sleikja sólina, það er nóg fyrir mig
4 aðilar sem ég klukka:
- Er bara ekki með neinn í huga því það er svo langt síðan þetta byrjaði að og hlýtur að vera farið hringinn og eitthvað nýtt byrjað.
Hef ekkert meira að segja í bili, ætla að fara niðrí bæ og kaupa mér einhverja geðveikt flotta og pæjulega tölvutösku, bless í bili og góða helgi.
Ma´sallama, Ragna

0 Comments:
إرسال تعليق
<< Home